SKILMÁLAR

Afhendingarmöguleikar:

Við reynum að bjóða uppá úrval af afhendingarmöguleikum til þess að auðvelda viðskiptavinum að nálgast pantanir sínar á sem hentugastan máta.
Hægt er að fá heimsendingar nánast samdægurs og einnig er hægt að sækja á marga staði á landinu. Við bjóðum bæði uppá að senda með Dropp og Póstinum.

Tafir geta verið á pöntunum í kringum stóra daga, Single's day, Black Friday og jól.

Sækja til my letra.:
Verslun okkar er í Silfursmára 2 og er opin alla virka daga frá kl.11:00-17:00.

Sækja á afhendingarstaði Dropp/Póstbox:
Hægt er að sækja pantanir á afhendingarstaði Dropp alla daga og samdægurs á höfuðborgarsvæðinu alla virka daga, ef pantað er fyrir kl.12:00. Kostnaðurinn er 790-990 kr en er frír ef verslað er fyrir meira en 12.000 kr.

Fá afhent á afhendingarstöð Flytjanda eða Pósthús:
Hægt er að fá pantanir afhentar á afhendingarstöðvum Flytjanda eða á Pósthúsi. Kostnaðurinn er 1.430 kr. en er frír ef verslað er fyrir meira en 20.000 kr.

Heimsending samdægurs með Dropp:
Við bjóðum uppá að fá pöntunina senda heim með Dropp og Póstinum. Pöntunin þarf að berast fyrir kl. 12:00 og er þá oftast afhent milli kl.17:00 - 22:00. Ef pöntunin berst eftir klukkan kl.12:00 þá er hún afhent næsta virka dag. Heimsending k
ostar 1.390 kr. fyrir höfuðborgarsvæðið og 1.490 kr fyrir suðvesturhornið, en er frír ef verslað er fyrir meira en 15.000 kr.

Foreign countries:
Shipping to other countries can cost between 10-20 EUR, depending on the country.

Delivery time will vary from 5-7 days. We also offer express delivery services for the rest of the world were the delivery time is 2-3 business days.

We reserve the right to ship products at a later date if the product ordered is not in stock at the time of purchase. In this situation you will be contacted and offered a full refund instead of delivery of the product. 

Almennir skilmálar my letra:

1 - Almennt 

My Letra ehf. rekur vefverslunina myletra.is. Með því að versla á vefnum samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála.

my letra. leggur áherslu á góða þjónustu og að viðskiptavinir séu ánægðir með kaup sín. Ef eitthvað kemur upp hvetjum við þig til að hafa samband og við finnum lausn.

2 - Upplýsingar um seljanda

My Letra ehf.
Silfursmári 2
201 Kópavogur
myletra@myletra.is

 

3 - Verð og greiðslur

Öll verð á vefnum eru birt með virðisaukaskatti.

Greiðslur fara fram í gegnum öruggar greiðslugáttir. Við staðfestingu á pöntun telst samningur kominn á.

4 - Afhending

Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Afhendingartími getur verið mismunandi eftir vörum og staðsetningu.my letra. ber ekki ábyrgð á töfum sem kunna að verða hjá flutningsaðila. Hægt er að sjá afhendingarmöguleika hér fyrir ofan.

 

5 - Skilað og skipt

Við höfum yfirleitt ekki stressað okkur á tímaramma vegna vöruskipta í my letra og flestir sem hafa skipt hjá okkur ættu að þekkja það vel. Við erum þó með nokkur skilyrði tengslum við skil og skipti sem verð greind hér fyrir neðan.

Réttur viðskiptavinar til endurgreiðslu er þó mismunandi eftir því hvort vara er keypt í verslun eða í vefverslun.

Vara keypt í verslun

Við skil á vöru sem keypt er í verslun býðst viðskiptavini að skipta í aðra vöru eða fá inneignarnótu að upphæð vörunnar.

Vara keypt í vefverslun

Samkvæmt lögum nr. 16/2016 hefur viðskiptavinur rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru.

Viljir þú falla frá kaupum innan 14 daga þá er hægt að senda tölvupóst á myletra@myletra.is.

Hér má finna eyðublað til þess að hætta við kaupsamning:

https://neytendastofa.is/library/Files/Neytendarettarsvid/ey%c3%b0ubla%c3%b0_.docx.

Ef vöru er skilað innan þess frests er hún endurgreidd að fullu miðað við kaupverð. Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup.

Ef vöru er skilað eftir 14 daga og uppfyllir öll skilyrði býðst inneignarnóta að upphæð vörunnar.

Skilyrði fyrir öllum skilum

Við skil á vöru eru eftirfarandi skilyrði höfð til hliðsjónar:
  • Að varan sem á að skila sé ennþá í sölu hjá okkur.
  • Eyrnalokkum fæst ekki skilað ef innsiglið á pakkningunni er rofin

Viðskiptavinur má skoða og prófa vöru á eðlilegan hátt. Með vísan til 4. mgr. 22. gr. laga nr. 16/2016 ber neytandi ábyrgð fyrir rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð hennar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.

Undantekningar frá skilarétti

Skilaréttur á ekki við um:

  • sérsniðnar vörur eða vörur framleiddar eftir óskum viðskiptavinar - hér er sérstaklega átt við áletraðar vörur.
  • eyrnalokkum þar sem innsiglið er rofið - vegna hreinlætisástæðna.
  • aðrar undantekningar samkvæmt lögum nr. 16/2016.

Kostnaður við skil

Viðskiptavinur ber kostnað af því að skila vöru nema annað sé tekið fram eða um gallaða vöru sé að ræða.

Ef þú vilt skipta vöru vinsamlegast hafðu samband við okkur í tölvupósti: myletra@myletra.is, inná samfélagsmiðlum: @myletrastore eða kíkja við í Silfursmára 2 á opnunartíma my letra.

6 - Gölluð vara og ábyrð

Ef vara reynist gölluð á viðskiptavinur rétt á úrbótum samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.

Viðskiptavinur getur eftir atvikum krafist:

  • viðgerðar
  • nýrrar vöru
  • afsláttar
  • eða riftunar samnings

Kvörtunarfrestur vegna galla er almennt tvö ár frá kaupdegi, en getur verið allt að fimm ár ef varan er ætluð til lengri endingar. sbr. 2. mgr. 27 gr. laga um neytendakaup.

Ábyrgðin nær eingöngu til framleiðslu- eða efnisgalla sem koma fram á ábyrgðartíma vörunnar. Ábyrgðin tekur ekki til eðlilegs slits eða skemmda sem verða vegna daglegrar notkunar, svo sem rispa, högga eða annarra óhappa.

7 - Kvartanir

Ánægja viðskiptavina:
Það skiptir okkur miklu máli að viðskiptavinir okkar séu ánægðir. Ef það er eitthvað sem þú ert óánægð/ur með ekki hika við að hafa samband við okkur. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að leysa vandamálið eins fljótt og hægt er. Við viljum veita okkar viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

Kvartanir:
Sé varan gölluð eða ef kaupandi er óánægður með vöruna hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur í tölvupósti: myletra@myletra.is

Ef ágreiningur kemur upp geta neytendur leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105, Reykjavík. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu nefndarinnar, kvth.is.

Við hvetjum þó alltaf til þess að hafa fyrst samband við okkur svo við getum leyst málið fljótt og vel.

8 - Persónuvernd

my letra. ber ábyrgð á öllum þeim persónulegu upplýsingum sem berast fyrirtækinu frá viðskiptavinum í gegnum heimsóknir og pantanir. Þær persónulegu upplýsingar sem berast eru notaðar til þess að tryggja afhendingu á vörum, hafa beint samband við viðskiptavini, og til að taka á móti greiðslum. 

Viðskiptavinir hafa lagalegan rétt til þess að óska eftir skoðun á þeim gögnum sem til eru og einnig að óska eftir breytingum á þeim gögnum.

Kökur (e. cookies):

Þessi heimasíða notar cookies fyrir grunnvirkni og nauðsynlega eiginleika til þess að hægt sé að versla á síðunni. Sömuleiðis notar þessi heimasíða cookies til þess fylgjast með heimsóknum á síðuna, hvaðan þær eru að koma og til þess að greina og hagræða betur notkun á síðunni.

9 - Verð og greiðslur

Verð:
Við leggjum mikla áherslu á að verðið sem er sýnt á heimasíðunni sé rétt. Hinsvegar þá áskilum við okkur þann rétt að breyta vöruverðum án frekari fyrirvara.

Greiðslumöguleikar:

  • Debit og Kredit kort (Visa- og Mastercard)
  • Netgíró
  • PEI
  • Aukakrónur

10 - Lög um varnarþing:

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur My letra ehf. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.